Eðlileg breyting

Að sjálfsögðu er það sanngirnis mál að skattur sé greiddur strax af söluhagnaði. Alveg eins og launafólk greiðir skatta af sínum launum um leið og þau eru greidd út.

Það er ekki rétt að þessi aðgerð takmarki flæði fjármagns. Fjármagnið flæðir nú á rétta staði, til a) nýrra kaupa og b) réttlátur skattur af söluhagnaði.

 

 


mbl.is Flæði fjármagns heft
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bland í poka

Oft er þetta ógeðslegt sem er verið að selja okkur.

Maður hefur stundum velt því fyrir sér hvað maður er að fara borða. 


mbl.is Rannsaka verði fullyrðingar um aukaefni í nautahakki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kreppuútflutningur

Við erum snillingar.

Er ekki hægt að selja þessa aðferð út líka?

Og lánin á húsunum okkar, bílunum og yfirdrættina líka.

 Brátt verðum við rík aftur. 


mbl.is Kreppan flutt út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fáranlegt er rétt er

Ótrúlegt ef satt reynist.

Það versta í þessu er að við fáum ekkert að vita hvað þessar skilanefndir eru að gera, ég held að það sé ekki til betra umhverfi fyrir spillingu af verstu gerð.
mbl.is Gamli Landsbankinn afskrifar skuldir Magnúsar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjötti vinurinn

Enn og aftur vakna ég eftir erfiða nótt, endalausar martraðir hafa fylgt mér eins og skugginn eftir að ég byrjaði að taka eftir auglýsingunum frá símafyrirtækjunum. ég má eiga einn vin, það stóð í auglýsingunni. Ég skreið aftur upp í rúm og breiddi sængina yfir andlitið. Ég hafði ekki hugmynd um að Guð skapaði einungis einn vin.

Versta martröð mín var að orðin að veruleika, hvernig átti ég að geta valið einn úr mínum yndislegu vinum? Eftir nokkra umhugsun ákvað ég þrátt fyrir kvölina að halda mínu striki, ég hafði alls ekki hugsað mér að eiga bara einn vin! Næstu daga læddist ég með veggjum og þorði ekki að spyrja nokkurn mann hvort hann væri búinn að velja sér vin. Auglýsingarnar héldu áfram að dynja yfir mann, í blöðum, útvarpi og sjónvarpi, allan liðlangan daginn. Einn skal það vera, töfratalan var komin fram, undan henni var ekki flúið. Smá saman byrjuðu hugsanirnar að koma, hægt og bítandi. Enginn af mínum vinum hafði hringt í mig til að láta mig vita að ég væri þeirra vinur.

Ég byrjaði því að greina vini mína, ég varð að komast að því hvern ég myndi velja sem minn vin. Fyrst tók ég kostina fyrir, en fannst þegar á leið að þeir voru svipaðir og því væri erfitt að notast við það. Ég fór því að gramsa í því sem mér þótti miður fara í þeirra fari. Eftir nokkra stund var listinn byrjaður að taka á sig nokkuð góða mynd. Mér varð því ljóst eftir að hafa rennt yfir hann að vinir mínir voru alls ekki í raun þeir vinir sem ég hélt. Ákvörðunin kom því að sjálfu sér, ég get ekki valið einn vin.

Guð hefur greinilega séð að sér því í dag kom ný auglýsing. Nú má ég eiga fimm vini. Ég tel mig eiga sex vini og get ómögulega ákveðið hvern af þeim sem ég þarf að hætta að umgangast. Átti Guð við að maður mætti eiga fimm í einu, en maður gæti skipt þeim út að vild? Ekki ætla ég að rökræða við yfirvaldið, sjötti vinurinn á að fara.

Ekki treysti ég mér í þá vinnu aftur að velja úr, eins mannskemmandi eins og það er. Leiðin mín eins og svo margra annarra var því að loka mig af. Ég hef í raun ekki séð eftir þeirri ákvörðun minni fyrr en í dag.

Nú má ég eiga eins marga vini og ég vil!

 

Smásaga eftir Stefán Jóhann Arngrímsson


Lækkun krónunnar

Er ekki bara aurinn búinn sem SÍ hefur til ráðstöfunar?

Einhver fugl hvíslaði því að mér að AGS væru ekki par hrifnir af því hvernig láninu hafi verið rástafað og því sé dráttur á næsta hluta :)


mbl.is Krónan lækkar enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Trust This

Höfundur

Stefán Jóhann Arngrímsson
Stefán Jóhann Arngrímsson
Hefur áhuga á öllu, skoðanir á öllu og endalausa getu til að skrifa.
Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 0
  • Frá upphafi: 10060

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 0
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband